Elite Camp Iceland 5.–9. ágúst í Egilshöll

Elite Camp Iceland 2026 🏀🤩
Eftir gríðarlega vel heppnaðar og vinsælar æfingabúðir sumarið 2025, þar sem þátttakendur náðu ótrúlegum framförum og foreldrar hvöttu okkur eindregið til að halda búðirnar aftur, höldum við nú Elite Camp æfingabúðirnar á ný og það verður 5.–9. ágúst 2026 í Egilshöll sem býður upp á enn meiri möguleika á fleiri æfingum og meiri afþreyingu.
Michael Cooper NBA Hall of Fame kemur aftur sem heiðursgestur – hann elskaði að tala við krakkana og gaf svo mikið af sér síðast.
Körfuboltanámskeið Laugarvatni 2026

🏀 Körfuboltanámskeið á Laugarvatni 11.–14. júlí 2026 🏀
Skráning á körfuboltanámskeiðið okkar á Laugarvatni er hafin inn á www.iai.is.
Áttunda árið í röð bjóðum við upp á sumarnámskeið á Laugarvatni. Yfir 2.000 krakkar hafa tekið þátt í námskeiðunum okkar til þessa og mörg þeirra oftar en einu sinni. Það selst alltaf upp sem talar sínu máli.
👥 Aldur: Krakkar fædd 2011–2015.
🛏️ Gist er á heimavist Menntaskólans á Laugarvatni í 2–4 manna herbergjum.
Körfuboltabúðir ÍBU á Flúðum 9.–12. júlí 2026
🏀 Körfuboltabúðir ÍBU á Flúðum 2026
Skráning er hafin í Körfuboltabúðir ÍBU 2026 sem fara fram á Flúðum dagana 9.–12. júlí 2026. 🌞
Þessar búðir þarf varla að kynna. Afbragðs þjálfarar úr fremstu röðum og engin gisting heldur alvöru fjölskylduferð í perlu Uppsveitanna yfir hásumarið. Ef þið hafið ekki tekið þátt áður þá eigið þið mikið eftir. 🏀✨
Við hvetjum fólk til þess að skoða gistingu í tíma ef tjaldsvæðið er ekki valmöguleiki. ⛺
BIBA Sumarskóli 22.–26. júní 2026 – 10 ára afmæli

🏕️ BIBA Sumarskóli 2026
🎉 10 ára afmæli!
Sumarbúðir BIBA verða haldnar tíunda árið í röð í Skógarseli frá 22. til 26. júní fyrir 9 til 16 ára drengi og stúlkur.
BIBA búðirnar innihalda stöðvaæfingar fyrir hádegi og hópvinnu eftir hádegi. Þá munu leikmenn sem sækja búðirnar einnig fá fyrirlestra um hin ýmsu málefni sem snerta bæði almenna heilsu og körfubolta. Þá eru búðirnar einnig byggðar upp á leikjum og keppni, en farið verður í maður á mann, víta og þriggja stiga keppni. Að lokum er svo stjörnuleikur þar sem að bestu leikmenn búðanna eru verðlaunaðir.
Dino Basketball Camp Rab 7.–14. júní 2026

Dino Basketball Camp Rab 2026
Skráning er opin til 1. apríl 2025 í hinar glæsilegu körfuboltabúðir Dino Stipcic fyrir sumarið. ✍️
📅 Dagsetningar: 7.–14. júní 2026
📍 Staðsetning: Rab, Króatía (Sjá á korti 🌍)
👥 Aldur: 2007–2012
⏳ Skráning lokar: 1. apríl
Búðirnar verða haldnar á fallegu eyjunni Rab í Króatíu, frá 7. júní til 14. júní í sumar og geta allir krakkar á aldursbilinu 2007 til 2012 skráð sig.
The Art of Shooting Camp á Íslandi / 2. útgáfa

The Art of Shooting Camp – Iceland 2026 🏀
The Art of Shooting Camp kemur aftur til Íslands í annarri útgáfu eftir vel heppnaðar búðir í fyrra.
📅 Dagsetningar: 29.–31. maí 2026
📍 Staðsetning: Dalsbraut 11, 260 Njarðvík, Iceland
💰 Verð: 20.000 ISK (+ 500 ISK miðagjald)
Aldurshópar
- Yngri hópur: leikmenn fæddir 2012–2016 (10–14 ára)
- Eldri hópur: leikmenn fæddir 2007–2011 (15–19 ára)
Um búðirnar
Þriggja daga þróunarprógramm með áherslu á skottækni, ákvarðanatöku og framkvæmd í leikástandi.
Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 11.–12. apríl 2026

Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026
Skráning er hafin á Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026 sem verður haldið í Smáranum, Fagralundi og íþróttahúsi Kársnesskóla helgina 11.–12. apríl 2026.
Um er að ræða stórskemmtilegt körfuboltamót fyrir krakka fædda 2016–2021 (MB 4–9 ára).
Mótsupplýsingar
- Hvert lið leikur a.m.k. 4 leiki
- 1×12 mín hver leikur
- 4–7 ára spila 3 á 3
- 8–9 ára spila 4 á 4
- Gjöf frá Bæjarins Beztu að móti loknu
Dagsetning
11.–12. apríl 2026
Basketball Camp í Stykkishólmi 4. apríl 2026

Basketball Camp í Stykkishólmi
Basketball Camp verður haldið í Stykkishólmi, Íslandi laugardaginn 4. apríl 2026 með Aytor Alberto og Haiden Palmer.
Tímasetningar
- 1.–3. bekkur: 12:00–13:30
- 4.–8. bekkur: 13:30–15:30
Fyrir hverja?
- Strákar og stelpur
- 1.–8. bekkur
Verð
- 4.000 kr.
Skráning
Körfuboltaskóli Vals um páskana 30. mars–1. apríl 2026

Körfuboltaskóli Vals um páskana
Athugið: Þessi viðburður barst okkur því miður ekki í tæka tíð og því misstum við af honum! Svo að þetta komi ekki fyrir aftur er um að gera að hafa samband við okkur og senda inn viðburði í tæka tíð.
📢 Opið er fyrir skráningar á páskanámskeið fyrir 8–12 ára.
Upplýsingar
- Dagsetning: 30. mars til 1. apríl 2026
- Tími: 13:30–15:00
- Staðsetning: Hlíðarendi
Ágúst Björgvinsson, yfirþjálfari, Friðrik Þjálfi Stefánsson og þjálfarar deildarinnar sjá um námskeiðið og fá til sín góða gesti.
Páskakörfuboltabúðir Hauka með Everage Richardson & Rósu Björk

Páskakörfuboltabúðir Hauka með Everage Richardson & Rósu Björk
Haukar bjóða upp á Páskakörfuboltabúðir fyrir krakka yfir páskana með þjálfurunum Everage Richardson og Rósu Björk.
Æfingarnar eru skipulagðar eftir aldursflokkum og miða að því að bæta grunnfærni í körfubolta, efla leikskilning og hafa gaman af íþróttinni í góðum hópi.
Dagsetningar
30. mars – 1. apríl 2026
Staðsetning
Haukar (Hafnarfjörður)
Tímasetningar
1.–6. bekkur
10:00 – 12:00