Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið
Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið
Heimsfrægi þjálfarinn Coleman Ayers kemur aftur til Íslands um páskana. Hann er 24 ára, hefur þjálfað leikmenn af öllum stigum (meðal annars NBA leikmenn) og haldið körfubolta kampa í 15+ löndum. Vörumerkið hans “By Any Means Basketball” er gríðarlega vinsælt, hefur 350þús áskrifendur á Youtube (45+ milljón áhorf) og 100þús fylgjendur á 📸 Instagram.
Coleman Ayers frá By Any Means Basketball heldur körfuboltanámskeið í páskafríinu mánudag-miðvikudag 25-27. mars í Skógarseli íþróttahúsi ÍR. 100+ sóttu námskeiðið í fyrra og það sló eftirminnilega í gegn.
Æfingatímar
- 10-13 ára (5-8. bekkur): 10:00-12:00
- 14+ ára (9.fl og eldri): 13:00-15:00
Hver æfing er 2 klst en salurinn er laus fyrir/eftir svo að áhugasamir leikmenn geta mætt fyrr (~30 mín) og hangið lengur (~60 mín) til að skjóta, spila, spjalla við þjálfarana og fá einstaklings-miðaða hjálp með sinn leik.
Innifalið í námskeiðinu
Innifalið í skráningunni er aðgangur að 1 af 7 online prógrömmum hans:
- “Ultimate Athleticism Program”
- “Small Guard Essentials”
- “Lockdown Defender Program”
- “Ultimate Ball-Handling Program”
- “Advanced Ball Handling Extension”
- “Ultimate Shooting Program”
- “Mental Skills Academy”
📅 Dagsetning: 25.–27. mars
🕘 Tímasetningar:
- 10:00 – 12:00 (10-13 ára)
- 13:00 – 15:00 (14+ ára)
📍 Staðsetning: Skógarsel íþróttahús ÍR, Reykjavík
💰 Verð: 14.900 isk
Ekki hika við að hafa samband á coachfrikki@gmail.com ef einhverjar spurningar vakna.