Gatorade Körfuboltabúðirnar í N1 Höllinni í 23. skipti
23. skipti sem Gatorade Körfuboltabúðirnar eru haldnar
Gatorade körfuboltabúðir í Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 3. júní til fimmtudags 6. júní næstkomandi og eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og körfuboltastelpur á aldrinum 11–18 ára.
Allir leikmenn í búðunum fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu reyndra þjálfara. Ágúst S. Björgvinsson er yfirþjálfari búðanna. Allir leikmenn fá síðan nóg af GATORADE til að svala þorstanum, bol, og fleira.
Skráning hefur verið mjög góð í ár eins og undanfarin ár. Aðeins örfá pláss eru eftir, en fullt hefur verið síðustu ár. Færri þátttakendur hafa komist að í búðirnar en hafa viljað og því mikilvægt að skrá sig í tíma til að tryggja sér pláss!
Upplýsingar
📅 Dagsetning: 3.–6. júní 2024
🕘 Tímasetningar: 17:00-20:30
📍 Staðsetning: Origo höllin að Hlíðarenda (hjá Val), Reykjavík
💰 Verð: 16.000 kr.
Dagskrá æfingabúðanna 2024
16:30–17:00 - Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.
17:00 - Stöðvaþjálfun: Stöðvaþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í 10 hópa eftir aldri og kyni. Farið er í sex mismunandi stöðvar á hverjum degi.
18:30 - NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA og spilað mót þá daga sem búðirnar standa yfir.
20:15 - Fyrirlestur: Stuttur fyrirlestur og æfingunni er síðan slitið í framhaldi af honum.
Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.
Þjálfarar og stöðvar
Frábærir þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár:
1. Styrktarþjálfun
Leikmenn fá leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Páls Arnars Kendeh, íþróttafræðings og styrktarþjálfara.
2. Video
Á þessari stöð verður farið í myndbandsgreiningu á körfubolta. Friðrik Þjálfi Stefánsson þjálfari frá Val mun sjá um stöðina. Friðrik er með skemmtilega YouTube síðu með yfir 230.000 fylgjendum sem má sjá hér.
3. Sókn: sendingar, drippl og cut
Á þessari stöð verður æft knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum.
- Þjálfari norðurdeildar: David Patchell frá Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í æfingabúðum um allan heim.
- Þjálfari suðurdeildar: Halldór Geir Jensson, sem þjálfaði í æfingabúðum hjá Duke og Davidson háskólanum síðastliðin sumur.
4. Fótavinna, sóknar- og varnarhreyfingar 1 á 1
Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.
- Þjálfari norðurdeildar: Jamil Abiad einstaklingsþjálfari frá Kanada, sem einkaþjálfar nokkra af bestu leikmönnum landsins.
- Þjálfari suðurdeildar: John Sarge, A-landsliðs margreyndur unglinga þjálfari frá Bandaríkjunum, sem er að koma gagngert til að þjálfa í Gatorade búðunum í ár. Verður einnig með sér námskeið eftir búðirnar 6-8. júní.
5. Varnarleikur
Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik liðs, einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 2 á 2 – 3 á 3 o.s.frv.
- Þjálfari norðurdeildar: Aron Páll Hauksson íþróttafræðingur og yngriflokkaþjálfari, ásamt Bjarna Þór Gíslasyni yngriflokka þjálfara.
- Þjálfari suðurdeildar: Ólöf Helga Pálsdóttir, unglingalandsliðsþjálfari frá Grindavík.
6. Skotstöð
Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki.
- Þjálfarar norðurdeildar: Frank Aron Booker, einn allra besti skotmaður Subway deildarinnar og Helena Sverrisdóttir, fyrrum atvinnumaður og landsleikja hæsti leikmaður íslenska landsliðsins.
- Þjálfarar suðurdeildar: Hassan Haq þjálfari frá Pakistan og Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim, og Margrét Ósk Einarsdóttir unglingalandsliðsþjálfari.
Yfirþjálfari búðanna
Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi færustu þjálfara landsins undanfarna tvo áratugi og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum: Hamar, Haukum og Val.
Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum.
Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University, Davidson, NC State, Five Star Basketball Camp, Pocano Invitational, Hoop Group Basketball camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér á Facebook.