IHandle í Ásgarði, 18.–20. júní
IHandle
Shawn Faust, ásamt Elvari M. Friðriksyni, mætir aftur í Garðabæinn í sumar með námskeið fyrir stelpur og stráka (11 ára og eldri).
Viltu bæta við leikinn þinn, þá er námskeiðið hjá Shawn Faust það rétta fyrir þig. Shawn Faust heldur námskeið 18-20. júní í Ásgarði.
Um þjálfarann
Shawn Faust sem þjálfað hefur NBA leikmenn eins og Killian Hayes – Detroit Pistons, Dwayne Bacon – Orlando Magic / AS Monaco, Tony Bradley – Chicago Bulls. En einnig þjálfað atvinnumenn sem spila í Evrópu sem og leikmenn úr háskólaboltanum sem vilja bæta leikinn sinn.
Ferill Shawn spanar fjölda ára þar sem hann spilaði atvinnumannabolta í Evrópu og Suður Ameríku ásamt því að spila í NBA G-league.
📅 Dagsetning: 18.–20. júní
🕘 Tímasetningar og aldur 👥:
- 11-14 ára: HÓPUR 1 13:00 – 15:00
- 15-17 ára: HÓPUR 2 16:00 – 18:00
📍 Staðsetning: Ásgarði, Garðabæ
💰 Verð: 15.900
👉 Skráðning fer fram hér
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér og 📸 Instagram.
Umsagnir frá atvinnumönnum
Frá Martin Hermannssyni leikmanni Alba Berlin í Þýskalandi:
“Þeir sem ætlar sér að ná langt mega ekki láta þetta tækifæri framhjá sér fara! Ég vildi óska þess að ég hefði haft tök á að hitta svona þjálfara þegar að ég var á þessum aldri. Það var ekki fyrr en ég fór til Berlínar, 24 ára gamall að ég fór að æfa nánast daglega með einstaklingsþjálfara og það hjálpaði mínum leik mikið. Ég hvet alla til þess að nýta sér einn fremsta einstaklingsþjálfara heims. Það er allaveganna eitthvað sem ég ætla að gera í sumar!”
Frá Elvari Má Friðrikssyni leikmanni PAOK í Grikklandi:
““Mig langar til að hvetja þig til þess að mæta á körfuboltanámskeið hjá Shawn Faust, þetta er kjörið tækifæri til að fá kennslu frá manni sem hefur sérhæft sig í einstaklingsþjálfun, svona tækifæri býðst okkur á Íslandi ekki oft svo ég hvet þig til að mæta og læra skemmtilegar og krefjandi æfingar sem leikmenn úr hæsta gæðaflokki hafa verið að nýta sér.