Jamil Abiad Skills Camp í N1 Höllinni
Jamil Abiad Skills Camp í N1 Höllinni
Dagana 25., 26., og 27. júlí nk. verður Jamil Abiad ásamt meistaraflokki kvenna með körfuboltabúðir í N1 höllinni fyrir krakka og ungmenni á aldrinum 9-18 ára.
Lögð verður áhersla á dripl, skot, hvernig skal bregðast við mismunandi aðstæðum í leik og fleira.
Um þjálfarann
Jamil Abiad er þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val auk þess að vera þekktur fyrir framlag sitt til körfuboltaþróunar í Kanada. Hann er fyrrverandi atvinnumaður í körfubolta og margfaldur stjörnuleikmaður á skólaárum sínum. Jamil hefur þjálfað fjölda leikmanna sem nú spila í atvinnumennsku, NCAA, USPORTS og CCAA. Hann rekur körfuboltabúðir víða um Kanada og hefur verið boðið að þjálfa íþróttamenn um allan heim. Markmið hans er að miðla þekkingu sinni og reynslu til að hjálpa ungum körfuboltaiðkendum að ná markmiðum sínum.
📅 Dagsetning: 25.–27. júlí
🕘 Tímasetningar
- júlí kl. 11:00-14:00 – Allir
- júlí kl. 11:00-14:00 – Allir
- júlí kl. 13:30-16:30 – Allir
📍 Staðsetning: N1 Höllin (hjá Val), Reykjavík
💰 Verð: 10.000 isk
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér og 📸 Instagram.
Tekið er fram að iðkendur allra félaga eru velkomnir á námskeiðið.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ósk Einarsdóttir, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna: margret.osk.96@gmail.com.