James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Garðabæ
Iceland Basketball Camp með James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Ásgarði
Pure Sweat körfuboltabúðir með James Purchin bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir unga körfuboltaiðkendur að þróa leikni sína og efla skilning á leiknum. Búðirnar byggja á heimsþekktri Pure Sweat aðferðafræði sem hefur verið notuð við þjálfun fjölda NBA og háskólaleikmanna.
Um þjálfarann
James Purchin er körfuboltaþjálfari og ráðgjafi hjá Pure Sweat sem sérhæfir sig í þjálfun leikmanna á öllum getustigum, allt frá ungum iðkendum að atvinnumönnum. Hann hefur þjálfað og aðstoðað hundruð leikmanna við að ná markmiðum sínum í háskólabolta og lengra. James hefur haldið yfir 25 námskeið bæði alþjóðlega og um gjörvallar Bandaríkin.
Hann leiðir leikmenn í gegnum sérsniðna þjálfun með því að miðla nýjustu þróun í tæknihæfni, kennsluaðferðum og hugtökum í gegnum krefjandi og nýstárlegar æfingar sem mæta sértækum þörfum leikmanna og liða. Að auki þjálfar James og aðstoðar við að reka AAU körfuboltaprógram í Oregon árið um kring, aðstoðar við NBA Pre-Draft undirbúning og heldur þjálfaranámskeið um allan heim.
📅 Dagsetning: 6.8. júní á Ísafirði og 10.–12. júní í Ásgarði, Garðabæ
🕘 Tímasetningar
- 13:00 – 15:30 (2011-2013)
- 16:00 – 18:30 (2010 og eldri)
📍 Staðsetning: Ísafjörður Ásgarður (Stjarnan), Garðabæ
💰 Verð: 14.900 isk
📞 Sími: +1.805.459.3485
📧 jpurchin@puresweatbasketball.com
Nánari upplýsingar um Pure Sweat má finna hér
Einnig á karfan.is