Jólanámskeið með Dani Rodriguez 27.–28. des
Dani Rodriguez
Dani Rodriquez þekkja allir körfuknattleiksunnendur, hefur spilað undanfarin ár við frábæran orðstír hér á landi og lék nýverið sína fyrstu A- landsleiki fyrir Íslands hönd þar sem hún skoraði sigurkörfuna á móti Rúmeníu. Í haust hélt hún í atvinnumennsku þar sem hún spilar með Eurocup liðinu BCF Fribourg frá Sviss.
Hún kemur til Stjörnunnar á milli jóla og nýárs og verður með minicamp fyrir 1.–10. bekk. Æfingarnar verða í Umhyggjuhöllinni, hópunum verður skipt eftir aldri og getu. Heimsóknir frá þjálfurum og leikmönnum og verðlaun og vinningar í boði fyrir þátttakendur.
1.–6. bekk (2018-2013) kl. 13.00–15.00
7.–10. bekk (2012-2009) kl. 15.30–17.30
💰 Verð 10.000 krónur
👉 Skráðning fer fram hér