Gatorade Körfuboltabúðirnar í Origo Höllinni 2025
Dagskrá Gatorade búðanna 2025
Gatorade körfuboltabúðir í Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 9. júní til fimmtudags 12. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára. Spilað er á háar körfur og þeir sem treysta sér í það eru velkomnir.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum.
Gatorade körfuboltabúðir 2025
- 📅 Frá 9. júní til 12. júní, 🕘 kl. 17:00–20:30
- 11 til 18 ára ♀️ stelpur og ♂️ strákar
- 💰 Verð: 16.500 kr.
Skráning hefur verið frábær síðust ár og færri komist að en viljað. Því mikilvægt að tryggja sér pláss með að skrá snemma.
Skrá í Gatorade búðir hér:
🔗 Skráningarform
Frekar upplýsingar:
📘 https://www.facebook.com/korfuboltabudirGusta
📧 coachgusti@gmail.com
Dagskrá æfingabúðanna 2025
- 16:30 – 17:00 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.
- 17:00 Stöðvaþjálfun: Leikmönnum er skipt upp í hópa eftir aldri og kyni. Farið er í sex mismunandi stöðvar á hverjum degi.
Þjálfarar í búðunum 2025
Frábæri þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár. Þeir þjálfara sem hafa staðfest komu sína eru:
- John Sarge – margreyndur unglingaþjálfari frá Bandaríkjunum, kemur aftur í ár og verður einnig með sérnámskeið eftir búðirnar 14.–15. júní.
- Jamil Abiad – einstaklingsþjálfari frá Kanada, einkaþjálfari nokkra af bestu leikmönnum landsins og meistaraflokksþjálfari kvenna í Val.
- Ólöf Helga Pálsdóttir – reynslumikill unglingalandsliðsþjálfari.
- Hassan Haq – þjálfari frá Pakistan og Englandi, með mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heiminn.
- Kristófer Acox – einn besti leikmaður Bónus deildarinnar síðustu ár.
- Páll Arnar Kendeh íþróttafræðingur og styrktarþjálfari verður með leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum.
Stöðvar í æfingabúðunum
Styrktarþjálfun
Leikmenn fá leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Páls Arnars Kendeh, íþróttafræðings og styrktarþjálfara.Video stöð
Myndbandsgreining á körfubolta.Sóknarstöð
Æfing knattraks og sendinga með einum og tveimur boltum, auk hreyfinga án bolta.Fótavinna, sóknar- og varnarhreyfingar 1 á 1
Fótavinna og sóknarhreyfingar fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.Varnarleikur
Varnarleikur liðs og einstaklings, fótavinna, varnarrennsli, vörn 2 á 2 – 3 á 3 o.s.frv.Skotstöð
Skothreyfing frá grunni og skemmtilegir skotleikir.
- 18:30 – Hlé og nesti
- 19:45 – NBA mót: Leikmenn skiptast í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA og spila mót þá daga sem búðirnar standa yfir.
- 20:20 – Fyrirlestur: Stuttur fyrirlestur og æfingunni er síðan slitið í framhaldi af honum.
Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.
Yfirþjálfari búðanna
Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi færustu þjálfara landsins undanfarna þrjá áratugi og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum: Hamar, Haukum og Val.
Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University, Davidson, NC State, Five Star Basketball Camp, Pocano Invitational, Hoop Group Basketball camp – búðir sem eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.