Körfuboltabúðir Leó Curtis 14. og 15. apríl
Leó Curtis, Scandinavian Elite og ÍR Körfu
Dagana 14. og 15. apríl mun Leó Curtis í samstarfi við Scandinavian Elite og ÍR Körfu halda körfuboltabúðir í Skógarselinu.
Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á spil í litlum hópum (1v1, 2v2 3v3) og að allir iðkendur séu sem mest með boltann í höndunum.
Hvorn daginn verður æft í 2 klukkutíma og 30 mínútur fara í videofund.
Námskeiðinu verður tvískipt, krakkar fæddir:
- 2013-2016 æfa 🕘 10-12:30
- 2009-2012 æfa 🕘 12:30-15:00.
📅 Dagsetning: 14.–15. apríl
📍 Staðsetning: Skógarseli, Reykjavík
Aðalþjálfarar námskeiðsins eru:
- Aron Walker stofnandi Scandinavian Elite.
- Leó Curtis fyrrum leikmaður ÍR og verðandi leikmaður Arizona State háskólans.
- Ísak Wíum yfirþjálfari yngri flokka hjá ÍR.
👉 Bóka hérna
Nánar um námskeiðið hér