Páskanámskeið Vals í körfubolta 14.–16. apríl
Páskanámskeið Vals í körfubolta
Dagana 14.–16. apríl (mánudag til miðvikudags) verður boðið upp á Páskanámskeið fyrir krakka á aldrinum 8–13 ára (f. 2016–2011) í körfubolta.
📅 Dagsetning: 14.–16. apríl
🕘 Tímasetning: 12:00–13:20
📍 Staðsetning: Valur, Reykjavík
👥 Aldur: Drengir og stúlkur fædd 2011–2016
👉 Skráning páskanámskeið:
Ágúst Björgvinsson, yfirþjálfari Vals, mun stýra námskeiðinu.
Ágúst hefur mikla reynslu á að halda körfuboltanámskeið og stýrir hinum gríðarlega vinsælu Gatorade körfuboltabúðum sem haldnar hafa verið í 25 ár og uppselt hefur verið í þær búðir síðustu árin.
Ágúst hefur þjálfað í þekktustu körfuboltaskólum í Bandaríkjunum síðustu áratugi, þar á meðal Duke, Five Star, Hoop Group Elite Camp, Pocono o.fl., þar sem margir núverandi og fyrrverandi leikmenn WNBA og NBA deildarinnar hafa verið í körfuboltabúðum.
Þjálfarar Vals munu aðstoða við æfingar og búast má við skemmtilegum gestum í heimsókn. Áhersla verður lögð á grunntækniþjálfun eins og skot, knattrak og leiki í litlum hópum. Iðkendum verður skipt upp eftir aldri og styrkleikum.