The Art of shooting búðirnar í IceMar Höllinni 30.–31. maí
The Art of Shooting – Körfuboltabúðir í Njarðvík
“Vertu fjölhæfur skotmaður – tilbúinn fyrir hvaða skot sem er, hvenær sem er.”
Njarðvík býður í samstarfi við hinar þekktu Shooting Club skotbúðir upp á The Art of Shooting Camp í fyrsta sinn í Icemar Höllinni. Þessar háþróuðu búðir hafa farið víða um Evrópu og eru leiddar af Peter Rajniak, skotþjálfara A-landsliðs Luxemborg og aðalþjálfara búðanna.
Peter er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður með sterk tengsl við Ísland þar sem hann lék með Loga Gunnarssyni á Spáni. Í búðunum er lögð áhersla á skottækni og skot í leikástandi með það að markmiði að gera iðkendur örugga og fjölhæfa skotmenn.
📅 Dagsetningar: 30.–31. maí 2025
📍 Staðsetning: Icemar Höllin, Njarðvík
🕒 Dagskrá:
Föstudagur: 15:00–18:00
Laugardagur:
Fyrri lota: 9:30–12:00
Hádegishlé: 12:00–13:00
Seinni lota: 13:00–15:30
👥 Aldur: 10 ára (2014 og fyrr) og eldri (hópaskipting eftir aldri og getu)
🎯 Þetta lærir þú í búðunum:
Skottækni – Betri stöðugleiki og nákvæmni
Ákvarðanataka og skotval – Hvenær er skot gott eða slæmt
Skot í leikhraða og undir pressu – Æfingar í leiklíku ástandi
Að klára við körfuna – Verja boltann og klára sterkt
Skotkeppnir – Keppni og skemmtun í bland
Sjálfstæð þjálfun – Byggðu þitt eigið æfingaplan
Gestafyrirlesari – Fyrirmyndar leikmaður eða þjálfari deilir reynslu
Næring fyrir íþróttafólk – Leiðbeiningar frá næringarfræðingi
⚠️ Takmarkað pláss – við mælum með að skrá sig sem fyrst!
🌐 Nánar: www.basketballshootingclub.com
📞 Sími: 690-0242
💰 Verð: 15.000 kr. (bolur innifalinn)
👉 Skráning fer fram hér
Iðkendur frá öðrum félögum eru hjartanlega velkomnir.