Elite Camp Iceland 5.–9. ágúst í Egilshöll

Elite Camp Iceland 2026 🏀🤩
Eftir gríðarlega vel heppnaðar og vinsælar æfingabúðir sumarið 2025, þar sem þátttakendur náðu ótrúlegum framförum og foreldrar hvöttu okkur eindregið til að halda búðirnar aftur, höldum við nú Elite Camp æfingabúðirnar á ný og það verður 5.–9. ágúst 2026 í Egilshöll sem býður upp á enn meiri möguleika á fleiri æfingum og meiri afþreyingu.
Michael Cooper NBA Hall of Fame kemur aftur sem heiðursgestur – hann elskaði að tala við krakkana og gaf svo mikið af sér síðast.
Irving Thomas, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og núverandi yfirnjósnari félagsins, mun á ný leiða körfuboltanámskeiðið í Reykjavík sumarið 2026. Búðirnar verða áfram byggðar í anda æfingabúða Lakers sem haldið er árlega í Los Angeles og er ein vinsælustu körfuboltabúðir innan NBA samfélagsins.
Irving Thomas lék með Los Angeles Lakers tímabilið 1990–1991 og átti síðan farsælan tíu ára atvinnumannaferil í Evrópu á Ítalíu, Frakklandi og Spáni. Frá árinu 2001 hefur hann starfað fyrir Lakers sem útsendari, þjálfari og sérfræðingur í leikmannagreiningu. Hann er einnig skólastjóri æfingabúða Lakers sem laðar til sín þúsundir ungmenna frá öllum heimshornum á hverju ári.
Æfingabúðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 8–17 ára og taka að hámarki 250 þátttakendur, sem tryggir að hver og einn fær einstaklingsmiðaða þjálfun frá reyndu innlendu og erlendu þjálfarateymi.
Auk Thomas munu fimm þjálfarar koma til Íslands og vinna í nánu samstarfi við íslenska afreksþjálfara. Allir þjálfararnir hafa mikla reynslu af þróun leikmanna sem stefna á atvinnumennsku, hvort sem er í NBA eða öðrum efstu deildum heims. Allir þátttakendur fá einnig sérhannaða gjöf og glaðning frá búðunum eins og vakti svo mikla lukku síðast.
💰 Verð:
- Stelpu hópur: 89.900 kr.
- Stráka hópur: 89.990 kr.
- Allt að 3 greiðslur (sjá skráningu)
📅 Dagsetningar: 5.–9. ágúst, 2026
📍 Staðsetning: Egilshöll, Reykjavík
Aldur: 8–17 ára (fædd 2009–2018)
👉 Skráning fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/jhbslf24
📸 Instagram: elite_camp_iceland
📘 Facebook: Elite Camp Iceland
Hafðu samband fyrir fyrirspurnir:
Jón Haukur Baldvinsson
📧 jonhaukurbaldvins@gmail.com · 📞 7827779
Yngvi Gunnlaugsson, körfuboltaþjálfari
📧 yngvipall@gmail.com · 📞 8635345