Elite Camp Iceland 2026 5.–9. ágúst í Egilshöll

Elite Camp Iceland 2026 🏀🤩
5.–9. ágúst
Eftir gríðarlega vel heppnaðar og vinsælar æfingabúðir sumarið 2025, þar sem þátttakendur náðu frábærum framförum og ánægjan skein úr hverju andliti, snýr Elite Camp Iceland aftur dagana 5.–9. ágúst 2026. Að þessu sinni fara æfingabúðirnar fram í Egilshöll, sem býður upp á enn betri aðstöðu, fleiri æfingar og meiri afþreyingu. Búðirnar verða lengdar um einn dag frá fyrra ári og metnaðurinn verður enn meiri.
Sérstakur heiðursgestur Elite Camp Iceland 2026 verður Robert Horry, einn sigursælasti leikmaður NBA-sögunnar og sjöfaldur NBA meistari. Horry er þekktur um allan heim sem „Big Shot Rob“ fyrir að hafa skorað nokkrar af mikilvægustu körfum úrslitakeppni NBA og unnið meistaratitla með Houston Rockets, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs. Koma hans til Íslands er einstakt tækifæri fyrir unga íslenska körfuboltaiðkendur að hitta og læra af einum af mestu sigurvegurum í sögu deildarinnar.
Irving Thomas, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og stofnandi Elite Camp Iceland, mun á ný leiða æfingabúðirnar. Búðirnar verða áfram byggðar á hugmyndafræði Camp Lakers, sem er eitt þekktasta og vinsælasta körfuboltanámskeið Bandaríkjanna.
Irving Thomas lék með Los Angeles Lakers tímabilið 1990–1991 og átti síðan farsælan tíu ára atvinnumannaferil í Evrópu. Frá árinu 2001 hefur hann starfað fyrir Lakers sem útsendari, þjálfari og sérfræðingur í leikmannagreiningu. Hann hefur jafnframt um árabil komið að uppbyggingu Camp Lakers og þróun ungra leikmanna.
Æfingabúðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 7–17 ára og taka að hámarki 250 þátttakendur, sem tryggir persónulega og einstaklingsmiðaða þjálfun frá reynslumiklu innlendu og erlendu þjálfarateymi.
Með Irving Thomas koma einnig öflugir þjálfarar frá Bandaríkjunum, auk íslenskra afreksþjálfara. Þar á meðal verður landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson, sem mun miðla reynslu sinni til þátttakenda. Allir þjálfararnir hafa víðtæka reynslu af þróun leikmanna sem stefna á atvinnumennsku eða leik á hæsta stigi.
Allir þátttakendur fá sérhannaðan Elite Camp Iceland fatnað og glaðning frá æfingabúðunum.
Skráning fer fram á Abler undir Elite Camp Iceland. Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst þar sem búast má við miklum áhuga.
💰 Verð:
- Stelpu hópur: 89.900 kr.
- Stráka hópur: 89.990 kr.
- Allt að 3 greiðslur (sjá skráningu)
📅 Dagsetningar: 5.–9. ágúst, 2026
📍 Staðsetning: Egilshöll, Reykjavík
Aldur: 8–17 ára (fædd 2009–2018)
Fylgstu með Elite Camp Iceland á samfélagsmiðlum:
- Facebook: Elite Camp Iceland
- Instagram: @elite_camp_iceland
Hafðu samband fyrir fyrirspurnir:
Jón Haukur Baldvinsson
📧 jonhaukurbaldvins@gmail.com · 📞 7827779
Yngvi Gunnlaugsson, körfuboltaþjálfari
📧 yngvipall@gmail.com · 📞 8635345
