Körfuboltabúðir með Jada 26.–27. október 2026

🏀 Körfuboltabúðir með Jada 🏀
📣 Jadakiss Guinn, leikmaður meistaraflokks kvenna hjá Haukum, stjórnar körfuboltabúðum fyrir yngri iðkendur í haustfríinu.
Búðirnar eru tveir dagar, þrír tímar í senn. Námskeiðið er opið öllum á aldrinum 6–11 ára (1.–6. bekkur).
⭐ Um Jada Guinn
- Kraftmikill bakvörður sem samdi við Hauka fyrir tímabilið 2026–27 í Bónus-deild kvenna
- Lék með Hamar/Þór síðasta vetur og var með 24,1 stig, 7,7 fráköst og 5,6 stoðsendingar að meðaltali í leik
- Skoraði 34,5 stig að meðaltali í tveimur leikjum gegn Haukum, þar af 37 stig í Ólafssal á Ásvöllum
- Lék fjögur ár með Tennessee Tech í bandaríska háskólaboltanum og lokaárið með Chattanooga, þar sem hún varð deildarmeistari og var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar (MVP)
📰 Frétt á Vísi um komu Jada til Hauka
📅 Dagsetningar og tímar
| Dagur | Tími |
|---|---|
| Mánudagur 26. október | 09:00–12:00 |
| Þriðjudagur 27. október | 09:00–12:00 |
📍 Staðsetning: Ásvellir, Hafnarfirði
👦 Aldur: 6–11 ára (1.–6. bekkur)
💰 Verð
5.000 kr.
👨👩👧👦 50% systkinaafsláttur er veittur fyrir systkini tvö og þrjú.
