High School Basketball Showcase – 24.–25. október

High School Basketball Showcase – október 2026
“High School Basketball Showcase” verður 24. og 25. október nk, í íþróttahúsinu á Álftanesi.
Þarna verða þjálfarar og fulltrúar frá bandarískum High school liðum og akademíum og munu bæði vera með æfingar og fræðslu um bandaríska high school kerfið. Tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru að hugsa um að fara út til Bandaríkjanna, til að fræðast og líka að bæta sig vonandi eitthvað í körfubolta.
Kjartan Atli verður á staðnum sömuleiðis, bæði til að þjálfa og líka til að ræða við viðstadda. Hann hefur reynslu af þessu sem foreldri, en dóttir hans er nú á öðru ári í high school akademíu í fótbolta. Hann getur því deilt því sem hann og fjölskylda hans hefur lært og sagt frá þeirra reynslu af þessu öllu saman.
- 📅 Hvenær: 24.–25. október 2026
- 📍 Hvar: Íþróttahúsið á Álftanesi
