IHandle Körfuboltanámskeið 18.–19. júní 2026

IHandle Körfuboltanámskeið 2026
Shawn Faust hefur komið síðustu fjögur ár og haldið þriggja daga námskeið sem iðkendur eru gríðarlega ánægðir með. Í ár bjóðum við upp á þrjár æfingar á tveimur dögum. Við erum heppinn að kappinn ætlar að mæta aftur og kenna áhugasömum leikmönnum tækniatriði leiksins.
Námskeiðið er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 ára og eldri.
Um þjálfarann
Shawn Faust er vinsæll einstaklings þjálfari með mikla reynslu en hann notar krefjandi æfingar til að kenna leikmönnum. Hann hefur ferðast víða um heiminn til að kenna áhugasömum einstaklingum sem vilja verða betri í körfu. Hann hefur unnið með leikmönnum í NBA, NCAA háskólaboltanum og víðar.
Hann hjálpar leikmönnum að bæta boltatækni, þar sem hann notar skemmtilegar og fjölbreyttar leiðir í bland við krefjandi æfingar með 1–2 bolta. Einnig sýnir hann og kennir hreyfingar sem nýtast vel til að komast framhjá sínum varnarmanni. Allt eru þetta æfingar sem leikmenn geta tileinkað sér og unnið að því að bæta leik sinn.
Námskeið og tímasetningar
Námskeið 1 – 11 til 14 ára (Strákar og Stelpur)
Þrjár æfingar á tveimur dögum:
- 🗓️ Fimmtudaginn 18. júní kl. 12:30–14:00 & kl. 16:00–17:30
- 🗓️ Föstudaginn 19. júní kl. 12:30–14:30
Námskeið 2 – 15 til 17 ára (Strákar og Stelpur)
Þrjár æfingar á tveimur dögum:
- 🗓️ Fimmtudaginn 18. júní kl. 14:00–15:30 & kl. 17:30–19:00
- 🗓️ Föstudaginn 19. júní kl. 15:00–17:00
Upplýsingar
📍 Staðsetning: Ásgarðurinn, Garðabær
💰 Verð: 14.500,- (Innifalið í verðinu er bolur frá I-Handle)
Vinsamlegast ýtið á “SUBMIT” þegar að búið er að fylla í alla reiti. Þegar að skráning er komin í gegn munum við senda greiðslu link til að greiða námskeiðið.
