Körfuboltabúðir ÍBU á Flúðum 9.–12. júlí 2026
🏀 Körfuboltabúðir ÍBU á Flúðum 2026
Skráning er hafin í Körfuboltabúðir ÍBU 2026 sem fara fram á Flúðum dagana 9.–12. júlí 2026. 🌞
Þessar búðir þarf varla að kynna. Afbragðs þjálfarar úr fremstu röðum og engin gisting heldur alvöru fjölskylduferð í perlu Uppsveitanna yfir hásumarið. Ef þið hafið ekki tekið þátt áður þá eigið þið mikið eftir. 🏀✨
Við hvetjum fólk til þess að skoða gistingu í tíma ef tjaldsvæðið er ekki valmöguleiki. ⛺
📅 Dagsetningar
Fimmtudagurinn 9. júlí 2026 – sunnudagurinn 12. júlí 2026
📍 Staðsetning
Flúðir
👥 Hópar
- Hópur 1: börn fædd 2018–2020 — 22.000 kr.
- Hópur 2: börn fædd 2015–2017 — 22.000 kr.
- Hópur 3: börn fædd 2013–2014 — 24.000 kr.
- Hópur 4: börn fædd 2008–2012 — 24.000 kr.
🏃 Fyrirkomulag
- Ein æfing á hvern hóp á fimmtudegi og sunnudegi
- Tvær æfingar á hvern hóp á föstudegi og laugardegi
📝 Skráning
Skráning lokar 30. júní 2026. ⏳
