KÖRFUBOLTABÚÐIR SÖRU OG REBEKKU - 24.–26. júlí

KÖRFUBOLTABÚÐIR SÖRU OG REBEKKU - fyrir stelpur fæddar 2018-2011
Landsliðskonurnar Sara Rún Hinriksdóttir og Rebekka Rut Steingrímsdóttir verða með körfuboltabúðir fyrir stelpur fæddar 2018 til 2011. Búðirnar verða á Meistaravöllum helgina 24. - 26. júlí og verður stelpunum skipt í tvo hópa. Við hvetjum stelpur úr öllum félögum til þess að mæta og nýta tækifærið til þess að læra af þeim bestu!
Skráning fer fram hér.
- Yngri hópur: 2018 - 2015
- Eldri hópur: 2014 - 2011
- Verð: 14.990 kr.
Dagskrá
Föstudagur
- Yngri 15:00 - 16:30
- Eldri 16:30 - 18:00
Laugardagur (tvær æfingar á hóp)
- Yngri 09:30 - 11:00 og 13:30 - 15:00
- Eldri 11:15 - 12:45 og 15:00 - 16:30
Sunnudagur
- Yngri 09:30 - 11:00
- Eldri 11:15 - 12:45
Þjálfarar í búðunum eru Sara Rún Hinriksdóttir, Rebekka Rut Steingrímsdóttir og Daníel Andri Halldórsson ásamt aðstoðarþjálfurum.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
