Skotbúðir Brynjars & Ármanns 30. mars – 1. apríl 2026

🏀 Skotbúðir Brynjars & Ármanns 2026 🏀
10 ár af körfuboltabúðum 🎉
Tíunda árið í röð verður @brynjarthor með skotbúðir í Dymbilvikunni, þetta árið eins og síðastliðin fjögur ár í samstarfi með @armannkarfa. Hundruð barna hafa komið í skotbúðirnar á þessum áratug, sum þeirra spila nú erlendis, enn önnur hafa farið út í þjálfun eða hafa komið með yngri systkin sín í búðirnar.
Skotbúðirnar eru tvískiptar – fyrir hádegið mætir 1.–6. bekkur og eftir hádegið er það 7.–10. bekkur.
Allir þátttakendur fá gjafabréf frá Yuzu, ávextir verða í hléunum og þá fá allir þátttakendur boli. Auk þess verða að sjálfsögðu veglegir vinningar í hinum ýmsu keppnum og leikjum. 🏆
📅 Dagsetningar og tímar
| Dagur | 1.–6. bekkur | 7.–10. bekkur |
|---|---|---|
| Mánudagur 30. mars | 09:00–12:00 | 13:00–16:00 |
| Þriðjudagur 31. mars | 09:00–12:00 | 13:00–16:00 |
| Miðvikudagur 1. apríl | 09:00–12:00 | 13:00–16:00 |
📍 Staðsetning: Laugardalshöll, Reykjavík
👦 Aldur: 6–11 ára (1.–6. bekkur) & 12–16 ára (7.–10. bekkur)
💰 Verð
20.000 kr.
