Skotbúðir Brynjars & Ármanns 22., 23. & 26. október 2026

🏀 Skotbúðir Brynjars & Ármanns – október 2026 🏀
Líkt og síðastliðin ár verður @brynjarthor með körfuboltabúðir í haustfríi grunnskólanna í samstarfi við @armannkarfa. Æfingarnar fara fram í Kennaraháskólanum 22. og 23. október og í Laugardalshöll 26. október.
Æfingarnar eru tvískiptar – fyrir hádegið mætir 2.–6. bekkur og eftir hádegið er það 7.–10. bekkur.
Allir þátttakendur fá gjafabréf frá Yuzu og verður létt nesti til staðar fyrir krakkana á meðan búðunum stendur. 🍎
📅 Dagsetningar og tímar
| Dagur | Staður | 2.–6. bekkur | 7.–10. bekkur |
|---|---|---|---|
| Fimmtudagur 22. október | Kennó | 09:00–12:00 | 13:00–15:00 |
| Föstudagur 23. október | Kennó | 09:00–12:00 | 13:00–15:00 |
| Mánudagur 26. október | Laugardalshöll | 09:00–12:00 | 13:00–15:00 |
📍 Staðsetning: Kennaraháskólinn (22.–23. okt.) & Laugardalshöll (26. okt.), Reykjavík
👦 Aldur: 2.–6. bekkur & 7.–10. bekkur
💰 Verð
20.000 kr.
Ef óskað er eftir að greiða með pening þarf að senda Brynjari skilaboð svo hægt sé að skrá barnið í kerfið.
