IHandle Körfuboltanámskeið 18.–19. júní 2026

IHandle Körfuboltanámskeið 2026
Shawn Faust hefur komið síðustu fjögur ár og haldið þriggja daga námskeið sem iðkendur eru gríðarlega ánægðir með. Í ár bjóðum við upp á þrjár æfingar á tveimur dögum. Við erum heppinn að kappinn ætlar að mæta aftur og kenna áhugasömum leikmönnum tækniatriði leiksins.
Námskeiðið er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 ára og eldri.
Um þjálfarann
Shawn Faust er vinsæll einstaklings þjálfari með mikla reynslu en hann notar krefjandi æfingar til að kenna leikmönnum. Hann hefur ferðast víða um heiminn til að kenna áhugasömum einstaklingum sem vilja verða betri í körfu. Hann hefur unnið með leikmönnum í NBA, NCAA háskólaboltanum og víðar.
Streetballmótið 2026

Streetballmótið 2026
Sumarið er nánast dottið í hlað og þjóðahátíðardagur okkar Íslendinga á næsta leiti 🇮🇸
Þann 17. júní munu 2ja manna lið etja kappi í æsispennandi streetball úrsláttarkeppni á Ingólfstorgi. Tip off verður á slaginu kl. 13:00 og standa yfir 1.000.000 kr. virði af gjafabréfum frá flottustu fyrirtækjum landsins til boða.
Við hvetjum keppendur til að spila drengilega – en MVP mótsins hlýtur vegleg verðlaun. ⛹️⛹️♀️
Skráðu þitt lið á Streetballmotid.is – örfá pláss eftir!
Aþena Körfuboltanámskeið fyrir Stelpur – Sumarið 2026

Aþena Körfuboltanámskeið fyrir Stelpur – Sumarið 2026
Komdu – Spiladu – Náðu árangri! 🏀
Aþena býður öllum stelpum í Austurbergi velkomnar í körfuboltanámskeið sumarið 2026. Frítt fyrir stelpur úr hverfinu!
Tímar
| Aldurshópur | Fæðingarár | Tími |
|---|---|---|
| 7–9 ára | Fæddar 2017–2019 | Kl. 9:00–12:00 |
| 10–13 ára | Fæddar 2014–2016 | Kl. 13:00–16:00 |
Mánudaga til föstudaga
Dagsetningar
- 11. júní – 11. júlí 2026
- 4. ágúst – 24. ágúst 2026
Skráning
Skráning fer fram hér.
Gatorade Körfuboltabúðirnar í N1-Höll Vals á Hlíðarenda 2026

Gatorade Körfuboltabúðir 2026
Elstu körfuboltabúðir á Íslandi frá árinu 2001! Körfuboltabúðirnar eru nú haldnar í 25. sinn og eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og körfuboltastelpur á aldrinum 11–18 ára.
Allir leikmenn í búðunum fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu reyndra þjálfara. Ágúst S. Björgvinsson er yfirþjálfari búðanna. Allir leikmenn fá síðan nóg af GATORADE til að svala þorstanum, bol, og fleira.
Dino Basketball Camp Rab 7.–14. júní 2026

Dino Basketball Camp Rab 2026
Skráning er opin til 1. apríl 2025 í hinar glæsilegu körfuboltabúðir Dino Stipcic fyrir sumarið. ✍️
📅 Dagsetningar: 7.–14. júní 2026
📍 Staðsetning: Rab, Króatía (Sjá á korti 🌍)
👥 Aldur: 2007–2012
⏳ Skráning lokar: 1. apríl
Búðirnar verða haldnar á fallegu eyjunni Rab í Króatíu, frá 7. júní til 14. júní í sumar og geta allir krakkar á aldursbilinu 2007 til 2012 skráð sig.
Iceland 3x3 Körfuboltamót 2026

Iceland 3x3 Körfuboltamót 2026
Velkomin í Iceland 3x3 Körfuboltamótið! Grábðu félaga þinn og mættu í samkeppnina! 🔥
Mótsupplýsingar
- Dagsetning: 6. júní 2026
- Byrjunartími: Kl. 14:00
- Staðsetning: Ásgarður, 210 Garðabær
- Skráningargjald: 40.000 kr. á lið
Skráning
Fylltu út skráningarformið hér og greiddu síðan skráningargjaldið með millifærslu:
- Kennitala: 460521-0760
- Reikningsnúmer: 0537-26-006848
- Tilvísun: NAFN LIÐS
Fylgstu með okkur
Sumarnámskeið Körfuknattleiksdeildar Aftureldingar 2026

Sumarnámskeið Körfuknattleiksdeildar Aftureldingar 2026
Leikur, gleði og körfubolti – sumar með Aftureldingu! 🏀
Öll börn í 1.–4. bekk grunnskólans eru hjartanlega velkomin á sumarnámskeið Körfuknattleiksdeildar Aftureldingar! Deildin býður upp á sumarnámskeið flestar vikur í sumar svo allir sem áhuga hafa geta skráð sig og prófað þessi vinsælu námskeið.
Námskeiðin eru leikjanámskeið þar sem körfuboltinn er alltaf í aðalhlutverki. Áhersla er lögð á gleði, hreyfingu og samveru – og aldrei er langt í boltann.
The Art of Shooting Camp á Íslandi / 2. útgáfa

The Art of Shooting Camp – Iceland 2026 🏀
The Art of Shooting Camp kemur aftur til Íslands í annarri útgáfu eftir vel heppnaðar búðir í fyrra.
📅 Dagsetningar: 29.–31. maí 2026
📍 Staðsetning: Dalsbraut 11, 260 Njarðvík, Iceland
💰 Verð: 20.000 ISK (+ 500 ISK miðagjald)
Aldurshópar
- Yngri hópur: leikmenn fæddir 2012–2016 (10–14 ára)
- Eldri hópur: leikmenn fæddir 2007–2011 (15–19 ára)
Um búðirnar
Þessar búðir eru hannaðar til að hjálpa leikmönnum að þróast sem heildstæðir körfuboltamenn — verða betri í að ljúka leikrænum aðstæðum, sveigjanlegri skyttar og skarpari í ákvarðanatöku á vellinum. Með hágæða þjálfun, skipulagðri æfingu og samkeppnisleik munu leikmenn þróa færni sem þeir geta strax beitt í leikjum.
Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 11.–12. apríl 2026

Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026
Skráning er hafin á Bæjarins Beztu körfuboltamót Breiðabliks 2026 sem verður haldið í Smáranum, Fagralundi og íþróttahúsi Kársnesskóla helgina 11.–12. apríl 2026.
Um er að ræða stórskemmtilegt körfuboltamót fyrir krakka fædda 2016–2021 (MB 4–9 ára).
Mótsupplýsingar
- Hvert lið leikur a.m.k. 4 leiki
- 1×12 mín hver leikur
- 4–7 ára spila 3 á 3
- 8–9 ára spila 4 á 4
- Gjöf frá Bæjarins Beztu að móti loknu
Dagsetning
11.–12. apríl 2026
Basketball Camp í Stykkishólmi 4. apríl 2026

Basketball Camp í Stykkishólmi
Basketball Camp verður haldið í Stykkishólmi, Íslandi laugardaginn 4. apríl 2026 með Aytor Alberto og Haiden Palmer.
Tímasetningar
- 1.–3. bekkur: 12:00–13:30
- 4.–8. bekkur: 13:30–15:30
Fyrir hverja?
- Strákar og stelpur
- 1.–8. bekkur
Verð
- 4.000 kr.