Körfuboltabúðir á Akureyri 17.–19. júlí 2025

Körfuboltabúðir á Akureyri 17.–19. júlí 2025
Vertu með í þessum frábæru sumar körfuboltabúðum undir stjórn landsliðsmanna!
Þjálfarateymið
Landsliðsmennirnir Ægir Þór Steinarsson og Tryggvi Snær Hlinason sem og Íslandsmeistarinn Júlíus Orri Ágústsson leiða æfingarnar ásamt úrvals hópi reyndra þjálfara.
Um Búðirnar
Búðirnar eru tilvaldar fyrir unga leikmenn sem vilja:
- ✅ Bæta tæknina sína og grundvallaratriði
- ✅ Fá innblástur frá bestu leikmönnum landsins
- ✅ Njóta þess að spila körfubolta í frábæru umhverfi
- ✅ Læra nýja hluti frá reyndum þjálförum
Tímasetningar og Aldurshópar
Æft verður einu sinni á dag í tveimur hópum, tvær klukkustundir í senn.
Körfuknatleiksnámskeið Laugarvatni

Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir sumarnámskeiðum á Laugarvatni.
Gist er í uppábúnum rúmum, fullu fæði þar sem áhersla er lögð á góðu umhverfi til æfinga og fræðslu auk skemmtunar.
Tvær æfingar daglega ásamt fyrirlestrum, sundlaugapartý, bubblubolti, kayak, crazy cars og margt fleira.
Skráning á námskeiðin fer fram hér
📅 Dagsetning: 11.–14. júlí 2025
📍 Staðsetning: Laugavatn
💰 Verð: 59.000 kr.
Skipulag æfinga
Hver æfing er í íþróttasal + styrkur/teygjur/hlaup
Hver æfing er í 60-80 mín +-
Körfuboltabúðir Hrunamanna Flúðum 3.–6. júlí 2025

Ægir Þór Steinarsson og Hrunamenn
Leikstjórnandi Stjörnunnar sem og landsliðsins Ægis Þór Steinarsson sér um þjálfunina í sumar. Ægir er einn af bestu leikstjórnendum landsins og hefur verið í landsliðinu í mörg ár. Hann er einnig þekktur fyrir að vera frábær leiðtogi og fyrirmynd fyrir yngri leikmenn.
📅 Dagsetning: 3.–6. júlí 2025
📍 Staðsetning: Flúðir, Hrunumannahreppur
👥 Aldur: 2017-2019
💰 Verð: 20.000 kr.
👉 Bóka hér
BIBA sumarbúðir 23.–27. júní 2025

BIBA Sumarbúðir 2025
Sumarbúðir BIBA verða haldnar í Skógarseli (ÍR) frá 23. til 27. júní fyrir 9 til 16 ára drengi og stúlkur.
BIBA búðirnar innihalda stöðvaæfingar fyrir hádegi og hópvinnu eftir hádegi. Þá munu leikmenn sem sækja búðirnar einnig fá fyrirlestra um hin ýmsu málefni sem snerta bæði almenna heilsu og körfubolta. Þá eru búðirnar einnig byggðar upp á leikjum og keppni, en farið verður í maður á mann, víta og þriggja stiga keppni. Að lokum er svo stjörnuleikur þar sem að bestu leikmenn búðanna eru verðlaunaðir.
Jamil & Chris Caird Basketball Camp 20.–21. júní

Jamil & Chris Caird Basketball Camp
Taktu þátt í krefjandi og skemmtilegu umhverfi þar sem þú munt fá að spreyta þig í allskonar tækniæfingum og læra eitthvað nýtt með Jamil þjálfara og honum til aðstoðar verður Chris Caird.
📅 Dagsetningar:
- júní kl. 17:00–20:00
- júní kl. 12:00–15:00
👥 Aldur: 11–18 ára (strákar & stelpur)
🚻 Aðeins 30 pláss í boði
💰 Verð: 15.000 kr.
IHandle í Ásgarði, 18.–20. júní

IHandle
Shawn Faust, ásamt reyndum aðstoðamönnum, mætir aftur í Garðabæinn í sumar með námskeið fyrir stelpur og stráka (11 ára og eldri).
Viltu bæta við leikinn þinn, þá er námskeiðið hjá Shawn Faust það rétta fyrir þig. Shawn Faust heldur námskeið 18-20. júní í Ásgarði.
Um þjálfarann
Shawn Faust sem þjálfað hefur NBA leikmenn eins og Killian Hayes – Detroit Pistons, Dwayne Bacon – Orlando Magic / AS Monaco, Tony Bradley – Chicago Bulls. En einnig þjálfað atvinnumenn sem spila í Evrópu sem og leikmenn úr háskólaboltanum sem vilja bæta leikinn sinn.
Sarge Basketball Basic Training Æfingabúðir 14.-15. júní

Sarge Basketball Basic Training Æfingabúðir 14.-15. júní 2025
John Sarge, unglingaþjálfari frá Bandaríkjunum, heldur námskeið fyrir áhugasama körfubolta krakka að Hlíðarenda í júní.
Um John Sarge
Sarge er með mjög mikla reynslu af körfuboltabúðum og hefur tileinkað lífi sínu að þjálfa körfubolta og ferðast á milli körfuboltabúða yfir 30 ár hvert sumar. Hann hefur þjálfað í mörgum af stærstu og virtustu körfuboltabúðum í Bandaríkjunum, þar á meðal Five Star, Hoop Group, Pocano og mörgum fleiri. Sarge hefur þjálfað fjöldann allan af leikmönnum sem hafa komist á D1 háskólastyrk og nokkra leikmenn sem hafa spilað í NBA deildinni.
Gatorade Körfuboltabúðirnar í Origo Höllinni 2025

Dagskrá Gatorade búðanna 2025
Gatorade körfuboltabúðir í 📍 Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 9. júní til fimmtudags 12. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára. Spilað er á háar körfur og þeir sem treysta sér í það eru velkomnir.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum.
Dino Basketball Camp 7.–14. júní 2025

Dino Basketball Camp 2025
Skráning er opin til 1. apríl í hinar glæsilegu körfuboltabúðir Dino Stipcic fyrir sumarið.
Búðirnar verða haldnar á fallegu eyjunni Rab í Króatíu, frá 7. júní til 14. júní í sumar og geta allir krakkar á aldursbilinu 2007 til 2012 skráð sig.
Dino Stipcic, leikmaður Álftaness og þjálfari U-15 karlalandsliðsins í körfuknattleik, hefur yfirumsjón með búðunum en honum til halds og trausts verður fjöldinn allur af frambærilegum þjálfurum og leikmönnum. Munu sérstakir gestir á borð við Jón Arnór Stefánsson, sem er af mörgum talinn fremsti körfuboltamaður í sögu Íslands, fyrrum NBA-leikmaðurinn Gordan Giriček og næringarsérfræðinginn Sebastijan Orlić láta sjá sig.
The Art of shooting búðirnar í IceMar Höllinni 30.–31. maí

The Art of Shooting – Körfuboltabúðir í Njarðvík
“Vertu fjölhæfur skotmaður – tilbúinn fyrir hvaða skot sem er, hvenær sem er.”
Njarðvík býður í samstarfi við hinar þekktu Shooting Club skotbúðir upp á The Art of Shooting Camp í fyrsta sinn í Icemar Höllinni. Þessar háþróuðu búðir hafa farið víða um Evrópu og eru leiddar af Peter Rajniak, skotþjálfara A-landsliðs Luxemborg og aðalþjálfara búðanna.