By any Means Basketball camp 16.–18. apríl

By any Means Basketball
BY ANY MEANS BASKETBALL – ICELAND CAMP 2025
Þriðja árið í röð!
Þjálfari Coleman Ayers og By Any Means Basketball snúa aftur til Íslands til að vinna með metnaðarfullum körfuboltakrökkum hvaðanæva að af landinu! Á hverju ári höfum við séð frábæra mætingu, mikla orku og ótrúlega framfarir – jafnvel á aðeins tveimur dögum. Við hlökkum til að gera þetta ár enn betra!
Körfuboltabúðir Hauka 14.–16. apríl

Körfuboltabúðir Hauka 14.-16. apríl
Körfuknattleiksdeild Hauka býður upp á æfingabúðir dagana 14.–16. apríl
Hvetjum alla áhugasama til að skrá sig og bæta sig rétt fyrir páskafrí.
📅 Dagsetning: 14.–16. apríl
🕘 Tímasetningar:
- 1.–6. bekkur æfir 10:00 - 12:00
- 7.–10. bekkur æfir 12:30 - 15:00
📍 Staðsetning: Íþróttahúsið Ásvöllum, Hafnarfjörður
📞 Sími: 690-0242
👥 Aldur: 1.–6. bekkur og 7.–10. bekkur
💰 Verð: 9.900 kr.
👉 Skráning fer fram hér
Körfuboltabúðir Leó Curtis 14. og 15. apríl

Leó Curtis, Scandinavian Elite og ÍR Körfu
Dagana 14. og 15. apríl mun Leó Curtis í samstarfi við Scandinavian Elite og ÍR Körfu halda körfuboltabúðir í Skógarselinu.
Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á spil í litlum hópum (1v1, 2v2 3v3) og að allir iðkendur séu sem mest með boltann í höndunum.
Hvorn daginn verður æft í 2 klukkutíma og 30 mínútur fara í videofund.
Páskanámskeið Vals í körfubolta 14.–16. apríl

Páskanámskeið Vals í körfubolta
Dagana 14.–16. apríl (mánudag til miðvikudags) verður boðið upp á Páskanámskeið fyrir krakka á aldrinum 8–13 ára (f. 2016–2011) í körfubolta.
📅 Dagsetning: 14.–16. apríl
🕘 Tímasetning: 12:00–13:20
📍 Staðsetning: Valur, Reykjavík
👥 Aldur: Drengir og stúlkur fædd 2011–2016
👉 Skráning páskanámskeið:
Ágúst Björgvinsson, yfirþjálfari Vals, mun stýra námskeiðinu.
Ágúst hefur mikla reynslu á að halda körfuboltanámskeið og stýrir hinum gríðarlega vinsælu Gatorade körfuboltabúðum sem haldnar hafa verið í 25 ár og uppselt hefur verið í þær búðir síðustu árin.
Skotbúðir Brynjars & Ármanns 14.–16. apríl

Skotbúðir Brynjars & Ármanns 14.–16. apríl
Það verður líf og fjör í Laugardalshöllinni í dymbilvikunni þegar Skotbúðir Brynjars og Ármann Körfubolti fara fram. Skotbúðirnar hafa verið vel sóttar síðastliðin ár og alltaf verið mikið fjör. Í ár verða þær tvískiptar. 2. - 6. bekkur og svo 7. - 10. bekkur.
Frábært tækifæri fyrir börn og unglinga til þess að verða betri í körfubolta.
📅 Dagsetning: 14.–16. apríl
By any Means Basketball ÞJÁLFARA BÚÐIR 8. apríl

Fyrir þjálfara og aðstoðarmenn
BY ANY MEANS BASKETBALL – ICELAND COACHES’ CLINIC 2025
Þjálfari Coleman Ayers og By Any Means Basketball snúa aftur til Íslands til að vinna með þjálfurum og aðstoðarmönnum í körfubolta. Þjálfarar munu fá tækifæri til að læra af einum af fremstu einstaklingsþjálfurum í Bandaríkjunum. Coleman hefur unnið með leikmönnum á öllum stigum – frá grunnskólakrökkum til atvinnumanna.
Við eyðum tveimur tímum í að fara yfir einstakar og nýstárlegar þjálfunaraðferðir sem auka sjálfstraust leikmanna, bæta leikskilning og hreyfigetu, og styrkja heildarfærni þeirra á vellinum. Þú færð með þér hagnýt verkfæri, æfingar og nýja sýn á þjálfun.
Bæjarins beztu körfuboltamót Breiðabliks 5.–6. apríl

Stórskemmtilegt körfuboltamót fyrir krakka fædda 2015-2019 (MB 5-9 ára)
Stórskemmtilegt körfuboltamót fyrir krakka fædda 2015-2019 (MB 5-9 ára)
Hvert lið leikur a.m.k. 4 leiki
- 1×12 mín hver leikur
- 5-7 ára spilar 3 á 3
- 8-9 ára spilar 4 á 4
Gjöf frá Bæjarins Beztu að móti loknu
Þátttökugjald er 3.500 kr. á hvern leikmann
Skráning á mótið fer fram hér
📅 Dagsetning: 5.–6. apríl 2025
Körfuboltabúðir Hauka - Vetrarfrí 24.–26. feb

Körfuboltabúðir Hauka - Vetrarfrí 24.–26. feb
📸 Steven Verplancken Jr. og 📸 De’ Sean Parsons frá Hauka munu leiða körfuboltabúðir fyrir krakka í grunnskóla í vetrarfríi.
Við munum bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá þar sem krakkarnir munu fá að æfa sig í körfubolta, leika sér og kynnast nýju fólki.
📅 Dagsetning: 24.–26. feb 2025
📍 Staðsetning: Íþróttahúsi Ásvalla, Hafnarfjörður
💰 Verð: 9.900 kr. 1.–6. bekkur, 10.900 kr. 7.–10. bekkur
Jólanámskeið með Dani Rodriguez 27.–28. des

Dani Rodriguez
Dani Rodriquez þekkja allir körfuknattleiksunnendur, hefur spilað undanfarin ár við frábæran orðstír hér á landi og lék nýverið sína fyrstu A- landsleiki fyrir Íslands hönd þar sem hún skoraði sigurkörfuna á móti Rúmeníu. Í haust hélt hún í atvinnumennsku þar sem hún spilar með Eurocup liðinu BCF Fribourg frá Sviss.
Hún kemur til Stjörnunnar á milli jóla og nýárs og verður með minicamp fyrir 1.–10. bekk. Æfingarnar verða í Umhyggjuhöllinni, hópunum verður skipt eftir aldri og getu. Heimsóknir frá þjálfurum og leikmönnum og verðlaun og vinningar í boði fyrir þátttakendur.
Jamil Abiad vetrarbúðir í N1 Höllinni

Jamil Abiad vetrarbúðir í N1 Höllinni
Komdu og vertu með í vetrarbúðum hjá Jamil Abiad, sem er þekktur fyrir að þjálfa atvinnumenn í körfubolta. Búðirnar eru ætlaðar fyrir 10-18 ára og munu fara fram í N1 Höllinni hjá Val. Þetta er frábært tækifæri til að bæta leikinn þinn og læra af einum af bestu þjálfurum heims.
Um þjálfarann
Jamil Abiad er þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val auk þess að vera þekktur fyrir framlag sitt til körfuboltaþróunar í Kanada. Hann er fyrrverandi atvinnumaður í körfubolta og margfaldur stjörnuleikmaður á skólaárum sínum. Jamil hefur þjálfað fjölda leikmanna sem nú spila í atvinnumennsku, NCAA, USPORTS og CCAA. Hann rekur körfuboltabúðir víða um Kanada og hefur verið boðið að þjálfa íþróttamenn um allan heim. Markmið hans er að miðla þekkingu sinni og reynslu til að hjálpa ungum körfuboltaiðkendum að ná markmiðum sínum.