BIBA Jólabúðir 20.-22. des

BIBA Jólabúðir 2024
Um er að ræða þriggja daga búðir sem munu standa frá 9 til 12 dagana 20., 21. og 23. desember. Verð fyrir hvern leikmann er 16 þúsund, en innifalið í skráningagjaldinu er stuttermabolur og þátttökumedalía.
📘 Hérna er Facebook BIBA
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að heimsækja BIBA á Facebook hér, eða hafa samband í gegnum tölvupóst bibabasketballacademy@gmail.com.
Einnig á karfan.is
Körfuboltabúðir Adama Darboe og Ármans (24.-25. og 28. Okt)

Körfuboltabúðir Adama Darboe og Ármans (24.-25. og 28. Okt)
Komið og lærið af einum af bestu leikmönnum Íslands, Adama Darboe, sem er leikmaður í meistaraflokki. Adama mun kenna ykkur allt um körfubolta og hvernig á að bæta sig í leiknum.
📅 Dagsetning: 24.-25. og 28. Okt
📍 Staðsetning: Laugardalshöll
👥 Aldur: 6-17 ára
💰 Verð: 12.000 kr. yngri hópar (6-11 ár) 💰 Verð: 20.000 kr. eldri hópar (12-17 ár)
Körfuboltabúðir á Meistaravöllum í vetrarfríi grunnskólanna

Körfuboltabúðir á Meistaravöllum í vetrarfríi grunnskólanna
Körfuboltabúðir í KR-heimilinu verða haldnar í vetrarfríi grunnskólanna dagana 24. 25. og 28. október nk.
Búðirnar eru fyrir metnaðarfulla krakka fædd 2009-2016 og standa yfir frá klukkan 09:00-12:00.
Um þjálfarana
Nimrod Hilliard leikmaður meistaraflokks karla mun hafa yfirumsjón með búðunum en ásamt honum mun Þórir “Tóti Turbo” og fleiri sjá um þjálfun. Nimrod er með eigin einstaklingsþjálfun í Bandaríkjunum á sumrin og hefur því mikla reynslu af því að þjálfa börn og ungmenni.
Jamil Abiad Skills Camp í N1 Höllinni

Jamil Abiad Skills Camp í N1 Höllinni
Dagana 25., 26., og 27. júlí nk. verður Jamil Abiad ásamt meistaraflokki kvenna með körfuboltabúðir í N1 höllinni fyrir krakka og ungmenni á aldrinum 9-18 ára.
Lögð verður áhersla á dripl, skot, hvernig skal bregðast við mismunandi aðstæðum í leik og fleira.
Um þjálfarann
Jamil Abiad er þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val auk þess að vera þekktur fyrir framlag sitt til körfuboltaþróunar í Kanada. Hann er fyrrverandi atvinnumaður í körfubolta og margfaldur stjörnuleikmaður á skólaárum sínum. Jamil hefur þjálfað fjölda leikmanna sem nú spila í atvinnumennsku, NCAA, USPORTS og CCAA. Hann rekur körfuboltabúðir víða um Kanada og hefur verið boðið að þjálfa íþróttamenn um allan heim. Markmið hans er að miðla þekkingu sinni og reynslu til að hjálpa ungum körfuboltaiðkendum að ná markmiðum sínum.
IHandle í Ásgarði, 18.–20. júní

IHandle
Shawn Faust, ásamt Elvari M. Friðriksyni, mætir aftur í Garðabæinn í sumar með námskeið fyrir stelpur og stráka (11 ára og eldri).
Viltu bæta við leikinn þinn, þá er námskeiðið hjá Shawn Faust það rétta fyrir þig. Shawn Faust heldur námskeið 18-20. júní í Ásgarði.
Um þjálfarann
Shawn Faust sem þjálfað hefur NBA leikmenn eins og Killian Hayes – Detroit Pistons, Dwayne Bacon – Orlando Magic / AS Monaco, Tony Bradley – Chicago Bulls. En einnig þjálfað atvinnumenn sem spila í Evrópu sem og leikmenn úr háskólaboltanum sem vilja bæta leikinn sinn.
James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Garðabæ

Iceland Basketball Camp með James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Ásgarði
Pure Sweat körfuboltabúðir með James Purchin bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir unga körfuboltaiðkendur að þróa leikni sína og efla skilning á leiknum. Búðirnar byggja á heimsþekktri Pure Sweat aðferðafræði sem hefur verið notuð við þjálfun fjölda NBA og háskólaleikmanna.
Um þjálfarann
James Purchin er körfuboltaþjálfari og ráðgjafi hjá Pure Sweat sem sérhæfir sig í þjálfun leikmanna á öllum getustigum, allt frá ungum iðkendum að atvinnumönnum. Hann hefur þjálfað og aðstoðað hundruð leikmanna við að ná markmiðum sínum í háskólabolta og lengra. James hefur haldið yfir 25 námskeið bæði alþjóðlega og um gjörvallar Bandaríkin.
Körfuboltabúðir John Sarge 7.-9. júní

Körfuboltabúðir John Sarge
John Sarge mætir og kennir á körfuboltabúðum í N1 Höllinni 7.-9. júní 2024.
Um John Sarge
John “Sarge” Siers hefur þjálfað körfubolta og haldið æfingabúðir í yfir 40 ár. Hann er núverandi aðalþjálfari strákalandsliðsins við Ocoee High School, Ocoee, FL.
Samhliða störfum sínum sem kennari og körfuboltaþjálfari við Ocoee High School, heldur Sarge tugi körfuboltabúða víðsvegar um Bandaríkin á hverju sumri, þar á meðal margar með The Hoop Group.
Gatorade Körfuboltabúðirnar í N1 Höllinni í 23. skipti

23. skipti sem Gatorade Körfuboltabúðirnar eru haldnar
Gatorade körfuboltabúðir í Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 3. júní til fimmtudags 6. júní næstkomandi og eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og körfuboltastelpur á aldrinum 11–18 ára.
Allir leikmenn í búðunum fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu reyndra þjálfara. Ágúst S. Björgvinsson er yfirþjálfari búðanna. Allir leikmenn fá síðan nóg af GATORADE til að svala þorstanum, bol, og fleira.
Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið

Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið
Heimsfrægi þjálfarinn Coleman Ayers kemur aftur til Íslands um páskana. Hann er 24 ára, hefur þjálfað leikmenn af öllum stigum (meðal annars NBA leikmenn) og haldið körfubolta kampa í 15+ löndum. Vörumerkið hans “By Any Means Basketball” er gríðarlega vinsælt, hefur 350þús áskrifendur á Youtube (45+ milljón áhorf) og 100þús fylgjendur á 📸 Instagram.
Coleman Ayers frá By Any Means Basketball heldur körfuboltanámskeið í páskafríinu mánudag-miðvikudag 25-27. mars í Skógarseli íþróttahúsi ÍR. 100+ sóttu námskeiðið í fyrra og það sló eftirminnilega í gegn.
Keira Robinson frá Haukum

Keira Robinson körfuboltabúðir í Ásvöllum
Keira mun leggja áherslu á bakvarðastöðuna en allir leikmenn hafa gott af því að bæta sig á því sviði.
📅 Dagsetning: 25.–26. mars
🕘 Tímasetningar 13:00 – 15:00
📍 Staðsetning: Ásvellir (Haukar), Hafnarfjörður
💰 Verð: 6.900 kr.