James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Garðabæ

Iceland Basketball Camp með James Purchin Pure Sweat á Ísafirði og í Ásgarði
Pure Sweat körfuboltabúðir með James Purchin bjóða upp á einstakt tækifæri fyrir unga körfuboltaiðkendur að þróa leikni sína og efla skilning á leiknum. Búðirnar byggja á heimsþekktri Pure Sweat aðferðafræði sem hefur verið notuð við þjálfun fjölda NBA og háskólaleikmanna.
Um þjálfarann
James Purchin er körfuboltaþjálfari og ráðgjafi hjá Pure Sweat sem sérhæfir sig í þjálfun leikmanna á öllum getustigum, allt frá ungum iðkendum að atvinnumönnum. Hann hefur þjálfað og aðstoðað hundruð leikmanna við að ná markmiðum sínum í háskólabolta og lengra. James hefur haldið yfir 25 námskeið bæði alþjóðlega og um gjörvallar Bandaríkin.
Körfuboltabúðir John Sarge 7.-9. júní

Körfuboltabúðir John Sarge
John Sarge mætir og kennir á körfuboltabúðum í N1 Höllinni 7.-9. júní 2024.
Um John Sarge
John “Sarge” Siers hefur þjálfað körfubolta og haldið æfingabúðir í yfir 40 ár. Hann er núverandi aðalþjálfari strákalandsliðsins við Ocoee High School, Ocoee, FL.
Samhliða störfum sínum sem kennari og körfuboltaþjálfari við Ocoee High School, heldur Sarge tugi körfuboltabúða víðsvegar um Bandaríkin á hverju sumri, þar á meðal margar með The Hoop Group.
Gatorade Körfuboltabúðirnar í N1 Höllinni í 23. skipti

23. skipti sem Gatorade Körfuboltabúðirnar eru haldnar
Gatorade körfuboltabúðir í Origo höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 3. júní til fimmtudags 6. júní næstkomandi og eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og körfuboltastelpur á aldrinum 11–18 ára.
Allir leikmenn í búðunum fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu reyndra þjálfara. Ágúst S. Björgvinsson er yfirþjálfari búðanna. Allir leikmenn fá síðan nóg af GATORADE til að svala þorstanum, bol, og fleira.
Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið

Coleman Ayers By Any Means Basketball námskeið
Heimsfrægi þjálfarinn Coleman Ayers kemur aftur til Íslands um páskana. Hann er 24 ára, hefur þjálfað leikmenn af öllum stigum (meðal annars NBA leikmenn) og haldið körfubolta kampa í 15+ löndum. Vörumerkið hans “By Any Means Basketball” er gríðarlega vinsælt, hefur 350þús áskrifendur á Youtube (45+ milljón áhorf) og 100þús fylgjendur á 📸 Instagram.
Coleman Ayers frá By Any Means Basketball heldur körfuboltanámskeið í páskafríinu mánudag-miðvikudag 25-27. mars í Skógarseli íþróttahúsi ÍR. 100+ sóttu námskeiðið í fyrra og það sló eftirminnilega í gegn.
Keira Robinson frá Haukum

Keira Robinson körfuboltabúðir í Ásvöllum
Keira mun leggja áherslu á bakvarðastöðuna en allir leikmenn hafa gott af því að bæta sig á því sviði.
📅 Dagsetning: 25.–26. mars
🕘 Tímasetningar 13:00 – 15:00
📍 Staðsetning: Ásvellir (Haukar), Hafnarfjörður
💰 Verð: 6.900 kr.
Árið 2024 í námskeiðum

Körfuboltanámskeið árið 2024
2024 frábært ár fyrir körfubolta íslands og var mikið um að vera. Ég reyndi að finna öll námskeiðin og setja þau inn.
En endilega sendu mér upplýsingar um þau námskeið sem ég er að gleyma og ég skelli þeim inn.
P.s myndin er klárlega búin til af AI með skemtilegum broddi yfir r-inu í Frábær ef einhver hafði ekki tekið eftir því.