Staðan: reglur og heimildir
Kbolti.is
Þessi síða útskýrir hvernig Staðan reiknar sæti í riðlum, stig til Íslandsmeistaratitils og verðlaunasæti í yngri flokkum, og hvaðan gögnin koma. Reglurnar eru frá KKÍ og FIBA. Þar sem síðan þarf sjálf að túlka eitthvað er það tekið fram.
Hvaðan koma gögnin
- Öll úrslit, riðlar og stöður eru sótt í mótakerfi KKÍ, sama kerfi og kki.is sýnir.
- Gögnin eru sótt sjálfkrafa um helgar og í miðri viku og geymd með síðunni. Neðst á Staðan-síðunni sést hvenær þau voru síðast uppfærð.
- Næstu leikir liðs koma úr mótakerfinu. Í fjölliðamótum birtir KKÍ riðla og leiktíma skömmu fyrir hverja umferð. Fram að því sýnir síðan helgi og mótshaldara umferðarinnar úr keppnisdagatali KKÍ og yfirliti KKÍ um staðsetningu móta. Þær upplýsingar eru slegnar inn handvirkt og geta breyst.
- Tímabil frá 2018–19 eru sýnd. Minnibolti 10 ára til 10. flokks öll árin, 11. og 12. flokkur frá 2022–23 þegar þeir flokkar urðu til í núverandi mynd.
- Engin nöfn leikmanna eða tölfræði einstaklinga eru í þessum gögnum.
Röð liða í riðli
Röðin innan riðils fylgir töflu KKÍ, sem fylgir reglum FIBA (viðauki D í leikreglunum):
- Sigur gefur 2 stig, tap 1 stig og leikur sem lið gefur 0 stig.
- Séu tvö eða fleiri lið jöfn ráða innbyrðis leikir þeirra.
- Ef enn er jafnt: stigamunur í innbyrðis leikjum, síðan skoruð stig í innbyrðis leikjum.
- Ef enn er jafnt: stigamunur í öllum leikjum riðilsins, síðan skoruð stig í öllum leikjum riðilsins.
Í minnibolta er hætt að telja stig liðs sem leiðir með 20 stigum, svo stigamunur í einum leik verður aldrei meiri en 20.
Tafla KKÍ var borin saman við þessa reglu í 1.174 riðlum. Röðin var sú sama alls staðar í A-riðli.
Fjölliðamót: flutningur milli riðla
Úr 25. grein reglugerðar KKÍ um körfuknattleiksmót:
- Minnibolti 10 ára leikur fjórar umferðir á tímabili. Minnibolti 11 ára, 7. flokkur og 8. flokkur leika fimm.
- Þrjú til sex lið eru í riðli og allir leika við alla sömu helgi.
- Eftir hverja umferð fer neðsta lið A-riðils niður í B-riðil og efsta lið B-riðils upp í A-riðil. Sama gildir á milli B og C, C og D og svo framvegis.
Hver verður Íslandsmeistari
| Flokkur | Umferðir | Hvað ræður |
|---|---|---|
| Minnibolti 10 ára | 4 | Stig fyrir sæti í A-riðli í síðustu tveimur umferðum |
| Minnibolti 11 ára | 5 | Stig fyrir sæti í A-riðli í síðustu þremur umferðum |
| 7. og 8. flokkur | 5 | Efsta lið A-riðils í síðustu umferð |
| 9. til 12. flokkur | Deild | Sigurvegari úrslitakeppni 1. deildar |
Stigin í minnibolta
Sæti í A-riðli gefur stig til Íslandsmeistaratitils:
| Sæti í A-riðli | 1. | 2. | 3. | 4. | 5. | 6. |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Stig | 5 | 4 | 3 | 2 | 1 | 0 |
Stigin eru lögð saman og stigahæsta liðið er Íslandsmeistari. Orðalag reglugerðarinnar (33., 34., 41. og 42. grein):
Lið í efstu deild, A-deild fá stig til Íslandsmeistaratitils eftir lokaröðun síðustu tveggja umferða sem hér segir: 1. sæti fær 5 stig, 2. sæti fær 4 stig, 3. sæti fær 3 stig, 4. sæti fær 2 stig, 5. sæti fær 1 stig.
Í minnibolta 11 ára stendur „síðustu þriggja umferða“.
7. og 8. flokkur
Það lið er Íslandsmeistari sem flest stig hlýtur í A-riðli í síðustu umferð.
(31., 32., 39. og 40. grein.)
9. til 12. flokkur
Í deildarkeppni ræður úrslitakeppni 1. deildar. Reglugerðin lætur mótanefnd KKÍ um útfærsluna (grein 25.2):
Mótanefnd skal útfæra úrslitakeppni í þeim yngri flokkum þar sem leikið er í deildarkeppni (9. flokk og eldri). […] Mótanefnd skal kynna fyrirkomulag úrslitakeppni yngri flokka eigi síðar en í febrúar á yfirstandandi tímabili.
Frá 2022–23 hafa fjögur lið leikið í úrslitakeppni hvers flokks. Í 28 af 29 tilvikum voru það fjögur efstu lið 1. deildar. Þetta er lesið úr úrslitum fyrri ára og er ekki regla sem gildir sjálfkrafa í vetur.
Ef lið eru jöfn að stigum í minnibolta
Reglugerðin segir ekki hvað ræður ef lið eru jöfn að stigum til titilsins. Hún segir aðeins að almennar reglur FIBA gildi þar sem annað er ekki tekið fram.
Túlkun þessarar síðu: regla FIBA um jöfn lið er notuð á leikina í þeim umferðum sem telja. Fyrst innbyrðis leikir jöfnu liðanna (sigrar, síðan stigamunur, síðan skoruð stig), svo allir leikir þeirra í A-riðli í þessum umferðum.
Þessi túlkun gefur rétta niðurstöðu í þeim tveimur tilvikum sem fundust:
- Minnibolti 10 ára drengja 2025–26. Haukar, Keflavík og Höttur fengu öll 8 stig. Í innbyrðis leikjum þeirra í 3. og 4. umferð vann hvert lið tvo og tapaði tveimur. Stigamunur: Haukar +19, Keflavík −6, Höttur −13. Haukar urðu Íslandsmeistarar.
- Minnibolti 10 ára stúlkna 2022–23. Skallagrímur og Grindavík fengu bæði 9 stig. Liðin unnu sinn innbyrðis leikinn hvort, Skallagrímur með 14 stiga mun og Grindavík með 2. Skallagrímur varð Íslandsmeistari.
Þetta er ekki skrifuð regla frá KKÍ. Ef KKÍ sker úr á annan hátt gildir niðurstaða KKÍ.
🥈 og 🥉 á síðunni
- Minnibolti: annað og þriðja stigahæsta liðið.
- 7. og 8. flokkur: 2. og 3. sæti A-riðils í síðustu umferð.
- 9. til 12. flokkur: liðið sem tapaði úrslitaviðureigninni fær 🥈. Bæði liðin sem féllu út í undanúrslitum fá 🥉, því ekki er leikið um þriðja sætið.
Fyrirvarar
- Íslandsmeistarar eru aðeins reiknaðir frá tímabilinu 2021–22. Tímabilin 2019–20 og 2020–21 voru ekki leikin til enda vegna COVID og reglur eldri tímabila voru ekki skoðaðar.
- Meistarar minnibolta 2023 til 2026 voru bornir saman við fréttir Karfan.is. Frétt fannst um 15 af 16 og allir stemmdu.
- Lið eru rakin á milli ára eftir nafni félags og bókstaf. B-lið eins árs er ekki endilega sömu leikmenn árið eftir.
- Ef eitthvað er rangt hér má láta vita, sjá Um Kbolti.is.
Heimildir
- Reglugerðir KKÍ, þar á meðal reglugerð um körfuknattleiksmót (PDF)
- Leikreglur FIBA 2026 (PDF), viðauki D: Classification of teams
- Mótayfirlit KKÍ: leikir, úrslit og stöður
- Keppnisdagatal yngri flokka 2026–2027 (PDF)
- Staðsetning móta minnibolta, 7. og 8. flokks 2026–2027 (PDF)
- Fréttir Karfan.is um meistara: Haukar, MB10 drengja 2026, Skallagrímur, MB10 stúlkna 2023, Álftanes, MB11 drengja 2026, Tindastóll, MB11 drengja 2024, Stjarnan, MB11 drengja 2025, Valur, MB10 stúlkna 2022